Um Mig
Ég heiti María og er fædd í Reykjavík árið 1981. Ég hef haft mikinn áhuga á ljósmyndun frá því ég man eftir mér en fór þó ekki að taka myndir af alvöru fyrr en ég átti dóttur mína árið 2006. Árið 2007 fór ég að læra Grafíska Hönnun í LHÍ og útskrifaðist þaðan með b.a gráðu árið 2010. Eftir árs skóla pásu flutti ég til Berlínar þar sem ég lærði ljósmyndun við Berliner Technische Hocschule. Eftir skóla myndaði ég m.a fyrir tímaritið Exberliner, tók myndir fyrir Men´s Health í Búlgaríu, Atlas Obscura, Nýtt líf og vann mikið við að ljósmynda fyrir Íslenska sendiráðið í Berlin. Vor 2017 flutti ég heim til Íslands. Síðan ég flutti heim hef ég m.a unnið verkefni fyrir Kaffitár, Farva og Tides magazine ásamt því að taka mikið af barna, fermingar og brúðkaups myndatökum.